Það eru miklar annir hjá starfsmönnum frystigeymsla Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um þessar mundir. Flutningaskipin koma hvert af öðru til að lesta frystar afurðir í Norðfjarðarhöfn og eins fara tugir gáma í hverri viku um borð í skip á Reyðarfirði. Í gær var lokið við að skipa 4.500 tonnum af afurðum um borð í skip í Norðfjarðarhöfn og þegar það sigldi út Norðfjörð mætti það næsta skipi sem mun lesta 2.000 tonn.
Fyrir utan verkefnin sem tengjast útskipunum landa frystiskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Hákon EA reglulega síld í frystigeymslurnar þessa dagana ásamt því að geymslurnar taka á móti allri framleiðslu fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar.