Í dag er skip að lesta tæp 3.000 tonn af frystri síld í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Eins og venjulega hafa miklar annir verið í frystigeymslum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað það sem af er árinu. Starfsmenn í geymslunum eru fjórir og er Heimir Ásgeirsson yfirverkstjóri. Tíðindamaður heimasíðunnar hitti Heimi að máli og spurði fyrst hve mikið af afurðum hefðu komið í geymslurnar á þessu ári. „Við erum búnir að taka á móti tæplega 47.600 tonnum á árinu. Það er meira en í fyrra en þá tókum við á móti 45.000 tonnum allt árið. Nú eigum við eftir að taka á móti íslensku sumargotssíldinni en veiðar á henni ættu að hefjast fljótlega. Langmest af fiskinum kemur frá fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en eins höfum við tekið á móti frystum afla frá uppsjávarskipinu Hákoni EA og síðan landar frystitogarinn Blængur NK hjá okkur mánaðarlega. Frystigeymslurnar hér eru hinar stærstu á landinu og rúma á bilinu 18.000 – 20.000 tonn. Fiskurinn fer frá okkur með tvennum hætti. Annars vegar fer hann í gámum í skip á Reyðarfirði og hins vegar um borð í skip hér í Neskaupstað. Meirihlutinn fer í gámum og yfirleitt fara frá okkur um 30 gámar á viku. Við erum búnir að setja í um 1.000 gáma það sem af er árinu. Staðreyndin er sú að hér er nóg að gera allt árið um kring því hver vertíðin rekur aðra. Það er loðnuvertíð og síðan makrílvertíð og loks síldarvertíðir. Hér hafa menn ekki áhyggjur af verkefnaskorti,“ segir Heimir.