Norðfjarðarhöfn í morgun. Vilhelm Þorsteinsson EA heldur til veiða að lokinni löndun. Fjærst er Hákon EA að landa frystum makríl. Börkur NK er að landa síld til frystingar. Ljósm. Smári GeirssonNorðfjarðarhöfn í morgun. Vilhelm Þorsteinsson EA
heldur til veiða að lokinni löndun. Fjærst er
Hákon EA að landa frystum makríl. Börkur NK
er að landa síld til frystingar. Ljósm. Smári Geirsson
Það hefur verið nóg að gera hjá starfsmönnum frystigeymsla Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að undanförnu. Á makrílvertíðinni hafa frystigeymslurnar tekið á móti um 20.000 tonnum og kemur makríllinn frá fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og frystiskipunum Vilhelm Þorsteinssyni EA og Hákoni EA. Tekið hefur verið á móti um 4.500 tonnum frá Vilhelm og um 3.500 tonnum frá Hákoni. Þá hefur einnig verið unnin grálúða í fiskiðjuverinu og eins hefur gengið vel að frysta þar norsk-íslenska síld frá því að veiðar á henni hófust.
 
Nú hefur Vilhelm Þorsteinsson hafið síldveiðar og landaði 580 tonnum af síldarflökum í gær en í dag er Hákon að landa rúmlega 500 tonnum af makríl.
 
Heimir Ásgeirsson, verkstjóri í frystigeymslunum, segir að miklar annir hafi verið hjá starfsmönnum frystigeymslanna síðustu mánuði. „Við erum að senda frá okkur 500-600 tonn í gámum í hverri einustu viku en gámarnir fara í skip á Reyðarfirði. Þá koma flutningaskip nokkuð reglulega og lesta frystar afurðir. Það er til dæmis væntanlegt skip í þessari viku sem mun taka um 2.500 tonn af síld og makríl hjá okkur,“ segir Heimir.