Smaey Bergey og Borkur

Frá Norðfjarðarhöfn í morgun. Verið er að landa úr Bergey VE og Smáey VE.  Fjær er verið að landa makríl úr Berki NK. Ljósm: Karl Jóhann Birgisson

                Að undanförnu hafa verið miklar annir í Norðfjarðarhöfn. Nánast samfelld löndun hefur verið á makríl og þá hefur bolfiski einnig verið landað í verulegum mæli úr togurum ásamt því að skip hafa komið til að taka afurðir. Smærri bátar setja einnig sinn svip á hafnarumhverfið en í dag mun hátt í tugur línubáta landa í Norðfjarðarhöfn og á annan tug strandveiðibáta. Það verður ekki annað sagt en það ríki líf og fjör við höfnina.

                Lokið var við að vinna makríl úr Margréti EA í gærkvöldi og hófst þá vinnsla úr Berki NK en hann kom með rúmlega 1.000 tonn. Beitir NK er síðan á landleið úr Smugunni með 1.100 tonn en ágæt makrílveiði var þar í gær. Þá er verið að landa fullfermi úr Eyjunum, Bergey VE og Smáey VE, í Neskaupstað í dag. Eyjarnar munu halda til veiða á ný strax eftir löndun.