Bergey VE að veiðum.  Ljósm. Egill Guðni GuðnasonBergey VE að veiðum. Ljósm. Egill Guðni GuðnasonÍsfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi eða um 75 tonnum í Vestmannaeyjum í gær. Heimasíðan sló á þráðinn til Jóns Valgeirssonar, skipstjóra á Bergey, og spurði fyrst hvar aflinn hefði fengist. „ Við fengum þennan afla í Lónsbugtinni og þar var Vestmannaey líka. Þarna var fínasta veiði og samanstóð aflinn af ýsu, ufsa og þorski. Stærstur hluti hans var ýsa. Aflinn fór víða. Hluti hans fór í útflutning en síðan til vinnslu í Eyjum, Dalvík, Akureyri, Seyðisfirði og Neskaupstað. Við fórum út strax að löndun lokinni og erum núna í karfa djúpt út af Surtsey í bongóblíðu. Vestmannaey ætlaði hins vegar að veiða lýsu. Nú er lögð áhersla á að veiða annað en þorsk og segja má að vertíðin hafi tekið enda. Það er hins vegar ennþá þorskur við Surtsey og bullandi þorskur út af Reykjanesi,“ segir Jón.