Bjartur NK kom inn í morgun með um 64 tonn og var uppistaða aflans þorskur. Bjartur NK heldur aftur til veiða á morgun.
Barði NK kom inn í morgun með um 120 tonn og uppistaða aflans er grálúða og gulllax. Barði NK heldur aftur til veiða á sunnudaginn kl. 13:00
Beitir NK er að landa um 1.000 tonnum í Helguvík og heldur strax aftur til veiða. Börkur NK er væntanlegur nú fyrir hádegið til Helguvíkur með um 1.400 tonn af loðnu.