Beitir NK er myndarlegt og falllegt skip. Ljósm. Hákon ErnusonBeitir NK er myndarlegt og falllegt skip. Ljósm. Hákon ErnusonBeitir NK kom til Neskaupstaðar í gær og var svo sannarlega glæsilegur. Hann hefur verið í Slippnum á Akureyri að undanförnu þar sem sinnt hefur verið viðhaldi auk þess sem skipið var málað hátt og lágt. 
 
Síldarvinnslan festi kaup á Beiti í árslok 2015. Skipið var keypt frá Danmörku og var burðarmesta uppsjávarveiðiskip við Norður-Atlantshafið þegar Síldarvinnslan eignaðist það. Beitir er fullkominn í alla staði en skipið var smíðað hjá Western Baltica Shipbuilding í Litháen árið 2014. Beitir er 4.138 tonn að stærð, lestarrýmið er 3500 rúmmetrar í 13 kælitönkum og stærð aðalvélar rúmlega 7000 hestöfl.
 
Beitir hélt til makrílveiða í gærkvöldi.
Beitir NK siglir inn Norðfjarðarflóa. Ljósm. Hákon ErnusonBeitir NK siglir inn Norðfjarðarflóa. Ljósm. Hákon Ernuson