Beitir NK með gott kolmunnahol. Ljósm. Helgi Freyr ÓlasonBeitir NK með gott kolmunnahol.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 2000 tonn af kolmunna sem fengust í færeysku lögsögunni. Gert er ráð fyrir að skipið haldi á ný til veiða í dag. Skipstjóri á Beiti í veiðiferðinni var Tómas Kárason og sló heimasíðan á þráðinn til hans. „Túrinn var ansi langur. Við hófum veiðar 26. nóvember og brælur trufluðu veiðarnar töluvert. Meðal annars lágum við í höfn í Færeyjum í eina 12 tíma. Aflinn var misjafn, stundum var lítið en stundum nokkuð gott. Aflinn fékkst í átta holum og það var lengi dregið. Lengst drógum við í 30 tíma. Besta holið gaf 450 tonn en þau fóru alveg niður í 100 tonn. Framan af var veitt 80-90 mílur norðaustur af Færeyjum en síðan færðum við okkur sunnar en vorum samt alltaf í svipaðri fjarlægð frá eyjunum,“ segir Tómas.
 
Börkur NK, Bjarni Ólafsson AK og Polar Amaroq eru einnig allir að kolmunnaveiðum við Færeyjar