Beitir NK með síldarhol. Ljósm. Guadalupe LaizBeitir NK með síldarhol. Ljósm. Guadalupe LaizBeitir NK kom sl. nótt til Neskaupstaðar með 1.350 tonn af síld sem öll fer til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Síldin fékkst í færeyskri lögsögu, 250-260 sjómílur austur af landinu. Sturla Þórðarson skipstjóri segir að ekki hafi orðið vart við mikla síld á veiðisvæðinu en aflinn fékkst í fimm holum. Síldin sem Beitir veiddi í veiðiferðinni er svipuð og áður hefur veiðst og hentar vel til manneldisvinnslu.
 
Börkur NK hélt til síldveiða í færeysku lögsögunni í gær.