Eyjapeyinn Hlynur Andrésson er á meðal helstu íþróttamanna þjóðarinnar. Hann keppir í langhlaupum og hefur verið iðinn við að setja Íslandsmet að undanförnu. Hlynur er nú handhafi Íslandsmeta í tíu vegalengdum, frá 3.000 m hlaupi og upp í maraþonhlaup.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum tók ákvörðun um að styrkja Hlyn og stuðla að því að hann geti helgað sig íþrótt sinni. Sl. laugardag fór hið árlega götuhlaup Vestmannaeyja fram og í tengslum við það undirrituðu Hlynur og Arnar Richardsson, rekstarstjóri Bergs-Hugins, styrktarsamning. Í styrktarsamningnum má lesa eftirfarandi: „Tilgangur þessa styrktarsamnings er að gera Hlyni kleift að einbeita sér að því að stunda sína íþróttagrein án utanaðkomandi truflana í því skyni að ná markmiðum sínum og standa straum af nauðsynlegum útgjöldum vegna uppihalds og ferðalaga í tengslum við næstu þrjú ár eða fram yfir Olympíuleikana í París árið 2024 en Hlynur hefur sett sér það markmið að ná lágmarki fyrir maraþon á leikunum.“
Það verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með Hlyni á næstu árum og er honum hér með óskað velfarnaðar.
![](https://svn.is/wp-content/uploads/2021/09/DSC_708nota-446x1024.jpg)
![](https://svn.is/wp-content/uploads/2021/09/240598255_10226459686988497_6846181753862734662_n-1024x683.jpg)