Vestmannaey VE kemur til hafnar í Eyjum. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og Vestmannaey VE landaði í morgun. Heimasíðan ræddi við skipstjórana. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að afli skipsins hafi verið um 65 tonn. „Þetta var mest ýsa og þorskur sem fékkst á Gula teppinu og á Breiðdalsgrunni. Veður var ágætt í túrnum. Þetta var skammturinn sem við máttum taka en lokunin hjá Vísi í Grindavík hefur veruleg áhrif á það hvernig veiðum hjá okkur er háttað,“ sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, upplýsti að afli skipsins hefði verið um 60 tonn. „Við máttum taka ákveðinn skammt sem ákveðinn er í samræmi við stöðuna í Grindavík. Aflinn hjá okkur var mest ýsa. Við tókum eitt hol út af Hornafirði en síðan var veitt á Breiðdalsgrunni og Skrúðsgrunni. Það var þokkalegt nag yfir daginn en rólegri veiði á nóttunni,“ sagði Birgir Þór.

Gert er ráð fyrir að Bergur haldi til veiða á ný á morgun en þegar þetta er ritað var ekki ákveðið hvenær Vestmannaey léti úr höfn.