Bergur VE er orðinn grænn og hefur fengið nafnið Jóhanna Gísladóttir GK. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Í októbermánuði sl. festi Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, kaup á útgerðarfélaginu Bergi. Með í kaupunum fylgdi ísfisktogarinn Bergur VE. Nú hefur togarinn verið seldur og er Vísir í Grindavík kaupandinn. Skipið hefur verið í slipp að undanförnu og var þar unnið að ýmsum lagfæringum ásamt því að það var málað í grænum Vísislit. Þá hefur það fengið nafnið Jóhanna Gísladóttir og einkennisstafina GK 357.

Togarinn var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1998 og er hann 569 brúttótonn að stærð með 1.300 hestafla vél.

Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent nýjum eiganda í byrjun næstu viku.