Bjarni Ólafsson kemur til löndunar í Neskaupstað

Bjarni Ólafsson AK hefur að undanförnu verið að kolmunnaveiðum austur af landinu og kom hann sl. nótt til Neskaupstaðar með 1.770 tonn. Heimasíðan ræddi við Runólf Runólfsson skipstjóra um kolmunnaveiðarnar. „Þetta hefur gengið tiltölulega vel. Um er að ræða stóran kolmunna, en í þessum túr var aflinn síldarblandaður. Við fengum töluvert af síld í einu holinu. Veiðarnar fóru fram út af Héraðsflóa og í Seyðisfjarðardýpi alveg út við kant. Það voru 56 mílur í Norðfjarðarhorn þegar við hættum veiðum.  Aflinn fékkst í sjö holum. Stærsta holið gaf um 300 tonn og hið minnsta um 200. Kolmunninn sést varla á mæli, hann sést einungis sem afar dauft ryk. Einungis er veitt á daginn en á nóttunni dreifir fiskurinn sér og fer upp í sjó og þá þýðir ekkert að eiga við hann. Auðvitað er mikilvægt að kolmunni veiðist í lögsögunni og það er þægilegt að eiga við þetta í blíðuveðri eins og verið hefur,“ segir Runólfur. 

Lokið verður við að landa úr Bjarna Ólafssyni síðdegis í dag.