Bjarni Ólafsson AK er eina skipið sem leggur nú stund á kolmunnaveiðar. Ljósm. Smári Geirsson

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar sl. nótt með tæplega 900 tonn af kolmunna. Áður hefur verið greint frá því að skipið hafi leitað að kolmunna út af Austfjörðum með takmörkuðum árangri en í fyrrdag fór að ganga betur að veiða. Runólfur Runólfsson skipstjóri segir að um sé að ræða stóran, feitan og fallegan kolmunna. „ Það rættist úr þessu undir lokin hjá okkur. Við fengum tvö þokkaleg hol út af Héraðsflóanum um 50 mílur frá Norðfjarðarhorni. Í fyrra holinu fengum við 320 tonn og var sá afli örlítið síldarblandaður. Síðan fengum við 190 tonna hol og var það hreinn kolmunni. Við erum mjög sáttir við þennan afla sem fékkst í gær og fyrradag og ég reikna með að við höldum áfram þessum veiðum,“ segir Runólfur.