Gott hol hjá Blængi NK. Ljósm. Hreinn Sigurðsson

Frystitogarinn Blængur er að landa í Neskaupstað í dag. Afli skipsins er 516 tonn og er hann blandaður, en mest er af grálúðu. Verðmæti aflans er 223 milljónir króna. Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri er sáttur við veiðiferðina. „Hér um borð eru allir sprækir og hressir. Veiðin gekk þokkalega og við fórum hringinn í þessum túr. Við byrjuðum fyrir austan, fórum suður fyrir land og enduðum fyrir austan. Veður var ágætt að mestu, en við flúðum að vísu af Vestfjarðamiðum vegna veðurs. Umtalsverð lækkun hefur orðið á fiskverði síðustu mánuði og eru slíkar verðsveiflur afar hvimleiðar. Ef til vill var verðið orðið óeðlilega hátt þegar það var hvað hæst. En verðsveiflur eins og þessar eru ekki nýjar af nálinni og getur ýmislegt valdið þeim. Nú bíðum við bara eftir að verðin hækki á ný,“ segir Bjarni Ólafur.