Landað úr Blængi NK. Ljósm. Hákon ErnusonLandað úr Blængi NK. Ljósm. Hákon ErnusonFrystitogarinn Blængur kom til Neskaupstaðar í gær úr góðum tveggja vikna túr. Afli skipsins var 300 tonn upp úr sjó að verðmæti 134 milljónir króna. Theodór Haraldsson skipstjóri segir að túrinn hafi í reynd gengið afar vel og verið tíðindalítill. „Við byrjuðum í þokkalegu grálúðukroppi, síðan var farið í Berufjarðarál í ufsa og loks var ýsa veidd á Stokksnesgrunni. Veiðin var góð lengst af og fiskað eins og vinnslan hafði undan. Það var blíðuveður allan túrinn, en kolsvört þoka. Þokan var svo dimm að við sáum oft ekki aftur á gálga,“ segir Theódór.
 
Blængur heldur til veiða á ný eftir verslunarmannahelgi.