Blængur NK kom til Neskaupstaðar með fullfermi í morgun.
Ljósm. Smári Geirsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni 27 daga veiðiferð. Skipið er með fullfermi eða 670 tonn upp úr sjó og eru afurðirnar 500 tonn, 21.500 kassar. Verðmæti aflans er 275 milljónir króna. Um er að ræða mjög blandaðan afla, mest er af gulllaxi en síðan einnig grálúða, ufsi og fleiri tegundir.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri er ánægður með túrinn. „Fyrstu vikuna vorum við á Austfjarðamiðum en síðan á suður- og suðvesturmiðum. Almennt séð gekk vel að fiska og veðrið var þokkalegt allan tímann, mest norðaustanátt 13 – 18 metrar og kalt. Helsta áhyggjuefnið eftir svona túr er vöntun á ufsa. Það eru öll skip að leita að ufsa en staðreyndin er að hann hefur hvergi sést í miklu magni. Spurningin er hvar hann heldur sig. Ufsinn hefur reynst erfiður en síðan gæti hann birst fyrirvaralaust einhversstaðar,“ segir Bjarni Ólafur.

Ráðgert er að Blængur haldi til veiða á ný á þriðjudagskvöld.