Gott karfahol hjá Blængi.
Ljósm. Guðmundur Hrafn Gnýsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð. Skipið var með fullfermi, 760 tonn upp úr sjó eða 23 þúsund kassa. Uppistaða aflans var gullkarfi, djúpkarfi og ýsa en einnig var nokkuð af gulllaxi. Heimasíðan ræddi við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Það var veitt frá Rósagarðinum, fyrir sunnan og vestan land og vestur á Hala. Segja má að aflinn hafi verið jafn og góður allan tímann. Það var nánast samfelld vinnsla og þá er mikilvægt að hafa hörkuáhöfn eins og við höfum svo sannarlega. Skipið er troðfullt og það getur ekki verið mikið betra. Almennt má segja að þessi veiðiferð hafi gengið afar vel og það eina sem unnt er að kvarta yfir er ufsaleysið og það er ekki í fyrsta sinn sem kvartað er yfir því,“ segir Bjarni Ólafur.

Ráðgert er að Blængur haldi á ný til veiða á fimmtudagskvöld og komi síðan inn í lok mánaðarins eða fyrir kvótaáramótin.