Frá Norðfjarðarhöfn í morgun. Frystitogarinn Blængur NK liggur fjærst, þá Hákon EA sem er að landa frystum makríl og næst liggur Bjarni Ólafsson AK sem er að landa makríl til vinnslu. Ljósm. Smári Geirsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær og hefur þar með lokið veiðum á yfirstandandi kvótaári. Afli skipsins í veiðiferðinni var 725 tonn upp úr sjó að verðmæti um 265 milljónir króna. Um helmingur aflans er ufsi en einnig þorskur, gullkarfi og grálúða. Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir að túrinn hafi einkennst af því að vera síðasti túr kvótaársins. „Í túrnum þurftum við að veiða það sem eftir var að veiða á kvótaárinu. Við vorum mest fyrir vestan frá Hala og vestur á Hampiðjutorg og síðan vorum við í grálúðu fyrir austan land. Það var gott veður allan tímann og þá er ekki hægt að kvarta. Auk þess má segja að túrinn hafi einkennst af ágætis kroppi þannig að menn eru sáttir. Upp á síðkastið hefur mikið verið hringt og spurt um pláss á skipinu þannig að það virðist vera að þrengja að víða. Ég hef ekki upplifað svona margar hringingar áður. Það koma engin símtöl frá Austfirðingum, þau koma flest frá höfuðborgarsvæðinu og Akureyri og það eru bæði vanir og óvanir menn sem hafa samband,“ segir Bjarni Ólafur. 

Landað verður úr Blængi á morgun og gert er ráð fyrir að hann haldi í fyrstu veiðiferð nýs kvótaárs síðdegis á mánudag.