Árið sem nú er senn á enda hefur verið einstaklega gjöfult fyrir skipverja Barkar NK og hafa þeir enn og aftur bætt aflaverðmæti sitt.  Þegar löndun úr Berki NK verður lokið í nótt þá verður aflaverðmæti skipsins á árinu komið yfir 1.900 milljónir króna sem er 570 milljónum betra en á árinu 2009 sem einnig var met ár.  Skipið hefur veitt um 55 þúsund tonn og skiptist aflinn þannig að norsk-íslensk síld er ríflega 14.200 tonn, kolmunni 12.500 tonn, loðna 12.200 tonn, Íslandssíld 9.900 tonn og makríll 6.000 tonn.  Langstærsti hluti aflans hefur farið til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hf.