Landað úr Bergi VE. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Eyjum í gær. Þetta var fyrsti túr skipsins að loknu eins mánaðar hléi frá veiðum. Aflinn var fyrst og fremst þorskur, ýsa og ufsi. Heimasíðan ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Við fórum austur á Papagrunn og þar gekk vel að fiska. Það var 18 tíma stím hvora leið. Þarna vorum við að veiðum í bongóblíðu og þarna virðist vera mikið líf. Fiskurinn er í síld á þessum slóðum. Það eru ekki mörg skip að veiðum núna því margir eru komnir í þrot með kvóta. Við förum út aftur annað kvöld og þá er stefnan að reyna við karfa,“ segir Jón.