Kolmunnahol hjá Beiti NK. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Bæði Börkur NK og Beitir NK eru að kolmunnaveiðum í íslenskri lögsögu þessa dagana. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og kom fram í máli þeirra að þarna fengist stór og góður kolmunni en gjarnan mætti vera meira af honum. Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, segir að veiðin sé róleg og þarna sé einungis um kropp að ræða.“Við erum komnir með 750 tonn í fimm holum. Það var mjög lítið að hafa í fyrstu en þetta hefur heldur skánað. Við höfum nú upp á síðkastið verið að fá um 10 tonn á tímann. Hér um borð eru menn farnir að láta sig dreyma um makríl. Færeyingarnir eru byrjaðir að veiða makríl í kantinum austur af Eyjunum. Þeir byrjuðu víst í gær,“ segir Tómas.

Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, var hinn hressasti þegar rætt var við hann. „Við erum á þriðja holi, fengum 320 tonn í fyrradag og 260 tonn í gær. Við drögum í sólarhring. Nú erum við austan við Þórsbankann nálægt miðlínu á milli Færeyja og Íslands ásamt Beiti og hér er bölvuð bræludrulla. Fyrsta veiðiferð á spánnýju skipi er að sjálfsögðu spennandi og hér um borð eru allir að læra. Það hefur allt gengið vel og einungis örfá smáatriði sem þurft hefur að lagfæra. Það er öllum ljóst að við erum á hörkuskipi sem gefur stórkostlega möguleika. Öll áhöfnin er alsæl og í brælunni núna finna menn hve skipið fer vel með okkur,“ segir Hjörvar.