Gullver NS, nýmálaður og fínn, mun halda til veiða nk. föstudag. Ljósm. Ómar BogasonGullver NS, nýmálaður og fínn, mun halda til veiða nk. föstudag. Ljósm. Ómar BogasonÞað sem af er júlímánuði hefur verið sumarstopp hjá frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og stoppið hefur verið nýtt til að sinna viðhaldi á húsinu og á togaranum Gullver NS. Nú er ráðgert að Gullver haldi til veiða nk. föstudag og að vinnsla hefjist í frystihúsinu seint í næstu viku. Róbert Ingi Tómasson, framleiðslustjóri í frystihúsinu, segir að allt sé tilbúið til að hefja vinnslu á ný. „Við höfum notað þetta hlé til að sinna viðhaldi og lagfæringum á húsinu. Hér hefur til dæmis allt verið þrifið, pússað og málað og lítur húsið virkilega vel út. Það verður allt spikk og span þegar við byrjum á ný. Hjá okkur starfar mikið af erlendu starfsfólki sem fór heim í stoppinu. Þetta fólk er nú að koma til landsins og við viljum fara afar varlega vegna kórónuveirunnar. Fólkið þarf að vera í fimm daga einangrun eftir komuna til landsins og þeirri reglu verður að sjálfsögðu fylgt. Þá munum við halda áfram því vinnufyrirkomulagi sem komið var á vegna veirunnar. Það er mjög brýnt að fara að öllu með mikilli gát í stríðinu við þessa veiru og við viljum ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum,“ segir Róbert.