Gott þorskhol hjá Bjarti NK. Ljósm. Þorgeir BaldurssonÍsfisktogarinn Bjartur NK kom til löndunar í Neskaupstað aðfaranótt mánudags með góðan afla eða um 120 tonn. Um 70 tonn af aflanum var þorskur en hluti hans var ufsi, ýsa, karfi og fleiri tegundir. Skipið var á veiðum í um það bil tvo og hálfan sólarhring þannig að það aflaðist jafnt og vel í túrnum. Túrinn hófst með ýsuveiðum innan við Undirbyrðarhrygg á Papagrunni og síðan var veiddur ufsi á suðvesturhorni Papagrunns. Þá var haldið í þorskinn og var hann tekinn frá Kransinum yfir á Brjálaða horn, á Örvæntingarhorni og í Kverkinni austan við Örvæntingarhorn. Á þessu svæði var bullandi þorskur og er um góðan fisk að ræða.

Steinþór Hálfdanarson skipstjóri á Bjarti segir að menn séu ánægðir með aflabrögðin en ráðgert er að Bjartur haldi í næsta túr á föstudagsmorgun og er löndun áætluð þriðjudaginn 18. júní. Áformað er að aflasamsetning verði svipuð í næsta túr og var í þeim síðasta að karfa undanskildum en Bjarti er ekki ætlað að veiða hann að sinni. „Hér um borð eru allir sallaánægðir“, segir Steinþór,“góður afli, gott veður, gott að borða – er hægt að biðja um eitthvað meira ?“