Vestmannaey VE og Bergur VE að landa í Eyjum.
Ljósm. Arnar Richardsson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum sl. miðvikudag. Aflinn var mest ýsa og þorskur en einnig dálítið af löngu og ufsa. Skipin héldu á ný til veiða á föstudagsmorgun og komu síðan til hafnar á sunnudag með fullfermi. Úr þeim var landað í gær. Aflasamsetningin úr seinni túr skipanna var svipuð og í þeim fyrri. Heimasíðan ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra skipanna, og spurði hvort menn væru ekki sáttir við aflabrögðin að undanförnu. “Jú, það er ekki hægt annað. Það hefur verið sannkölluð dúndurveiði að undanförnu. Skipin hafa samtals veitt á fyrstu fjórum mánuðum ársins um 4.600 tonn af slægðum fiski, sem er helmingurinn af því sem við veiddum allt árið 2023. Í marsmánuði var afli hvors skips 800 tonn og þau voru um 20 daga á sjó. Þorskur er drjúgur hluti aflans, eða um 50%, en það hefur verið mikil eftirspurn eftir stórþorski. Þessi þorskur hefur farið til saltfiskvinnslu hjá Vísi í Helguvík. Sannleikurinn er sá að vertíðin hefur gengið vel í alla staði. Fyrir utan góða veiði hefur veður verið hagstætt og mjög stutt að sækja aflann. Menn eru afskaplega glaðir með þessa vertíð og lukkulegir með útkomuna. Þessi mikla þorskveiði leiðir til þess að í sumar verður áhersla lögð á ýsu- og ufsaveiði. Einnig verða einhver hlé á veiðum skipanna og líklega mun hvort skip stoppa í um mánaðartíma,” segir Arnar.

Bæði Bergur og Vestmannaey munu halda á ný til veiða á fimmtudag.