Afli Blængs NK í veiðiferðinni var tæplega 600 tonn upp úr sjó. Ljósm. Hreinn SigurðssonAfli Blængs NK í veiðiferðinni var tæplega 600 tonn upp úr sjó.
Ljósm. Hreinn Sigurðsson
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir tæplega mánaðar túr. Aflinn var tæplega 600 tonn upp úr sjó, mest gullkarfi og djúpkarfi, gulllax og þorskur. Verðmæti aflans er um 160 milljónir króna. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði hvar skipið hefði verið að veiðum. „Við byrjuðum fyrir austan land, fórum síðan suðurfyrir, þá á Vestfjarðamið og loks suður fyrir aftur. Staðreyndin er sú að það var veðrið sem stjórnaði því hvar veitt var. Þetta var eilífur flótti undan veðri. Ég man bara ekki eftir svona tíðarfari  eins og verið hefur í vetur, það hefur í sannleika sagt verið djöfullegt. Áhöfnin er orðin afar þreytt á þessu en nú hlýtur þetta að fara að lagast, þetta getur ekki verið svona endalaust. Í veiðiferðinni leituðum við mikið að ufsa en það tókst ekki að finna hann í neinu magni. Það er engu líkara en hann hafi tekið sér frí frá miðunum hér,“ segir Theodór.
 
Gert er ráð fyrir að Blængur haldi til veiða á ný nk. fimmtudag.