Landað úr Vísisbátnum Sighvati GK í Grindavík

Í gær, þann 1. desember, var endanlega gengið frá kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi hf. í Grindavík. Ákvörðun um kaupin var tekin í júlímánuði sl. en samkeppniseftirlitið samþykkti þau nýverið. Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir að nú bíði það spennandi verkefni að samþætta starfsemi félaganna á sviði bolfiskveiða og -vinnslu. Ljóst sé að Vísir sé vel rekið fyrirtæki og muni tilkoma þess styrkja Síldarvinnslusamstæðuna með ótvíræðum hætti.

Vísir er rótgróið og öflugt fyrirtæki sem rekur bæði saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík auk þess að gera út sex fiskiskip. Floti fyrirtækisins samanstendur af þremur stórum línubátum, einu togskipi og tveimur krókaaflamarksbátum. Hjá Vísi starfa um 250 manns, 100 á sjó og 150 í landi. Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, segir að eigendur fyrirtækisins hafi verið samstíga og mjög sáttir við ganga til samstarfs við Síldarvinnsluna „Vísir var fjölskyldufyrirtæki og við komin á þau tímamót að horfa til framtíðar með rekstrarformið. Við teljum að það hafi verið mjög skynsamlegt að fá hlutabréf í Síldarvinnslunni í skiptum fyrir fyrirtækið og taka þannig þátt í áframhaldandi uppbyggingu bolfiskhlutans hér í Grindavík. Það er borin mikil virðing fyrir Síldarvinnslunni og menn treysta henni í hvívetna. Innan Síldarvinnslunnar og í eigendahópi hennar er að finna landsliðið í íslenskum sjávarútvegi. Þar er mikil reynsla og þekking. Það er tilhlökkunarefni að hefja störf innan samstæðu Síldarvinnslunnar og við lítum framtíðina björtum augum,“ segir Pétur Hafsteinn.