Beitir NK bíður löndunar í blíðunni. Ljósm. Smári Geirsson

Enn berst kolmunni til fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Á Seyðisfirði var byrjað að landa úr Barða NK í morgun en hann kom með rúm 2.000 tonn. Þá bíður grænlenska skipið Polar Amaroq löndunar á Seyðisfirði með 1.700 tonn. Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gær með rúmlega 2.000 tonn og er gert ráð fyrir að löndun úr honum hefjist í kvöld. Lögð er áhersla á að landa úr skipunum jafnóðum og hráefnið er unnið því betra er að geyma það kælt um borð en í hráefnistönkum verksmiðjanna.

Með þeim afla sem bíður löndunar hafa verksmiðjurnar tvær tekið á móti um 33.000 tonnum af kolmunna það sem af er árinu. Almennt er hráefnið sem skipin koma með gott og hentar vel til vinnslu að sögn Eggerts Ólafs Einarssonar, verksmiðjustjóra á Seyðisfirði, og Hafþórs Eiríkssonar, verksmiðjustjóra í Neskaupstað.

Ef loðnan heldur áfram að vera í felum er gert ráð fyrir að skipin haldi til kolmunnaveiða vestur af Írlandi. Þar hefur að undanförnu verið hörkuveiði.