Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er enn að fá kolmunna til vinnslu. Ljósm. Hákon Ernuson

Grænlenska skipið Polar Amaroq er væntanlegt til Neskaupstaðar í kvöld með fullfermi eða 2.200 tonn af kolmunna úr færeyskri lögsögu. Heimasíðan ræddi stuttlega við Sigurð Grétar Guðmundsson skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. „Við fengum aflann í sjö holum en veiðin hefur mikið minnkað frá því þrgar hún var mest. Holin voru miklu lengri nú en fyrr á vertíðinni eða frá sex og upp í átján tíma. Fiskurinn er að ganga í norður og er að dreifa sér. Það var blíðuveður allan túrinn og alls engin ástæða til að kvarta undan veðrinu. Þetta er okkar síðasti túr að sinni en við ætlum að geyma restina af kvótanum og taka eina tfvo túra í haust. Næst á dagskrá er að hefja undirbúning makrílvertíðar. Kolmunnaveiðin að undanförnu hefur verið einstaklega góð og ég hef aldrei kynnst slíkri veiði áður. Við höfum landað aflanum í Skagen í Danmörku og hjá okkur hefur mun meiri tími farið í löndunarbið þar en í veiðar. Við höfum oftast þurft einungis tvo sólarhringa til að fylla bátinn,“ segir Sigurður.

Polar Amaroq er í eigu fyrirtækisins Polar Pelagic sem er að hluta í eigu Síldarvinnslunnar. Hitt skip fyrirtækisins, Polar Ammassak, er nú í slipp í Frederikshavn í Danmörku.