Vestmannaey VE á miðunum. Ljósm. Ragnar Waage Pálmason

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE eru báðir að landa fullfermi í Vestmannaeyjum í dag. Aflinn fékkst á um það bil sólarhring í Háadýpinu við Hólshraun. Á miðnætti var þessum miðum lokað vegna hrygningarstopps. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að um aðgæsluveiði hafi verið að ræða. „Það var dregið í um það bil 40 mínútur hverju sinni og aflinn var afar góður. Það sem meira er að þarna fékkst töluverður ufsi og það er stórfrétt. Auk ufsaaflans fékkst einnig þorskur og ýsa. Þetta gekk semsagt eins og í sögu og aflinn var hagstæð blanda. Miðin eru í um það bil 40 mínútna siglingafjarlægð frá höfninni í Eyjum þannig að þetta var í reynd eins þægilegt og hugsast getur,“ segir Birgir Þór.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi, tekur undir með Birgi Þór og segir að vel hafi gengið að veiða og fiskurinn sem fékkst hafi verið blandaður og virkilega fínn. „Þarna fékkst stórufsi, stórýsa og einnig dálítill þorskur. Það eru í reynd tíðindi þegar ufsaveiði er góð eða þokkaleg, en nú er komið hrygningarstopp á þessu svæði svo það verður ekki framhald á henni að sinni,“ segir Ragnar.

Bæði skip halda til veiða á ný síðdegis á morgun. Þá verður væntanlega farið austureftir þar sem opið er til veiða.