Hver skrautlegi krakkahópurinn á fætur öðrum hefur heimsótt skrifstofur Síldarvinnslunnar í dag og sungið fyrir starfsfólkið. Krakkarnir eru gjarnan klædd hinum fjölbreyttustu búningum og söngvarnir bráðskemmtilegir og vel fluttir. Kennarar Nesskóla hafa fylgt hópunum og er þess vandlega gætt að allir geti tekið þátt og notið öskudagssprellsins. Í þakklætisskyni fyrir heimsóknina var unga fólkinu afhentur harðfiskpoki.

Það er svo sannarlega fagnaðarefni að fá heimsóknir sem þessar og hér fylgja myndir af hópum sem glöddu starfsfólk skrifstofunnar.