Framkvæmdir við löndunarhús og stækkun fiskimjölsverksmiðju í Neskaupstað ganga vel. Nýja verksmiðjuhúsið, sem er í byggingu, sést vel á myndinni.
Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Sl. vor hófust framkvæmdir við stækkun fiskimjölsverksmiðju og löndunarhúss Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Löndunarhúsið er stækkað um 300 fermetra og í því komið upp búnaði sem mun tvöfalda afköstin við vinnslu á loðnuhrognum. Stækkun verksmiðjunnar er hins vegar skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er reist 2000 fermetra verksmiðjuhús og komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem á að geta afkastað 380 tonnum á sólarhring. Litlu verksmiðjueiningunni er fyrst og fremst ætlað að vinna afskurð frá fiskiðjuveri fyrirtækisins auk þess sem hún mun nýtast vel við þróunarverkefni. Í síðari áfanganum verður komið upp búnaði sem eykur afkastagetu verksmiðjunnar úr 1.800 tonnum á sólarhring í 2.380 tonn. Verður búnaðinum í nýja verksmiðjuhúsinu komið upp í áföngum án þess að það hafi áhrif á framleiðslustarfsemina þannig að framleiðsla á fiskimjöli og lýsi verður stöðug þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir.

Um þessar mundir er unnið að uppsetningu vélbúnaðar í löndunarhúsinu og jafnframt byggingu verksmiðjuhússins. Nýja verksmiðjuhúsið er stálgrindarhús. Grindin er risin og er byrjað að klæða veggi þess.