Síldarvinnslan hf. hefur fest kaup á Margréti EA-710 af Samherja hf.  Margrét EA er eitt öflugasta uppsjávarskip íslenska flotans.  Skipið var smíðað í Noregi 1998 og er 2.188 brúttótonn, 1.270 brúttórúmlestir og 71,1 metri að lengd og 13 metrar að breidd.  Aðalvél skipsins er Wartsila 11.000 hestöfl.  Tankarými er 2.100 m2 í tólf tönkum, tvö kælikerfi eru í skipinu samtals 1,5 millj. kcal.

Skipið mun hljóta nafnið Beitir NK-123 og skipstjóri verður Sturla Þórðarson, skipstjóri á móti Sturlu verðu Hálfdán Hálfdánarson.  Sturla hefur verið skipstjóri á Berki NK.  Skipstjóri á Berki NK verður Sigurbergur Hauksson og á móti Sigurbergi verður Hjörvar Hjálmarsson en þeir hafa báðir verið skipstjórar á skipum félagsins.

Skipið hefur verið í verkefnum niður við Afríku en er væntanlegt heim í kringum hvítasunnuna og mun hefja veiðar fyrir Síldarvinnsluna fyrir mánaðarmót í norsk-íslenskri síld og makríl.

Síldarvinnslan hf. þekkir vel til skipsins enda hefur það landað í vinnslu hjá félaginu á undanförnum árum.  Samræmast þessi kaup vel auknum áherslum félagsins á frystingu uppsjávarfiska.  Við sjáum fyrir okkur aukinn hlut uppsjávarfiska til manneldis í framtíðinni.  Fjárfestingar félagsins og uppbygging síðustu ára hafa verið til að styrkja samkeppnisstöðu okkar á frystimörkuðum.

Þessi fjárfesting Síldarvinnslunnar byggir á því að sjárvarútvegsráðherra hefur úthlutað veiðiheimildum í makríl fyrir þetta árið.  Síldarvinnslan mun reyna að hámarka verðmæti þess afla sem fyrirtækið hefur aðgang að og eru kaupin á Margréti EA liður í því.

Gunnþór Ingvason
Framkvæmdastjóri