Fyrsta loðnulöndun á Íslandi í tæplega þrjú ár. Ljósm. Sigurður Grétar Guðmundsson

Sl. laugardag landaði grænlenska skipið Polar Amaroq tæplega 700 tonnum af frystri loðnu á Eskifirði. Starfsmenn Tandrabergs ehf. hófu löndunina snemma um morguninn og lauk henni um kvöldið. Þessi loðnulöndun markar tímamót því hún er sú fyrsta hér á landi í tæplega þrjú ár.

Polar Amaroq fékk aflann í hinu svonefnda trollhólfi austur af landinu. Aflinn fékkst að mestu í þremur holum en fyrsta holið var tekið í mjög slæmu veðri og gaf einungis 20-30 tonn. Loðnan sem veiddist var hin fallegasta og voru um það bil 40 stk. í kílóinu. Nokkur áta var í loðnunni.

Skipstjóri á Polar Amaroq í veiðiferðinni var Sigurður Grétar Guðmundsson og segir hann það afar góða tilfinningu að vera farinn að veiða loðnu á ný. 

Polar Amaroq hélt á ný til veiða strax að löndun lokinni. Þegar haft var samband við skipið í morgun var það búið að taka eitt 300 tonna hol og var unnið að frystingu um borð af fullum krafti.