Jón Gunnar Sigurjónsson að meta loðnunaFyrsta loðnufrysting ársins er hafin, en Beitir NK og Guðmundur Ólafur ÓF komu með sitthvor 500 tonnin til Neskaupstaðar rétt fyrir hádegi á fimmtudaginn. Loðnan var í smærri kantinum eða um 60 stk/kg. og fór hún öll til frystingar. 15 manns komu að frystingunni og var fryst á vöktum um helgina.