Haldið til veiða í fyrsta sinn undir nýju nafni.
Ljósm. Benedikt Þór Guðnason

Eins og áður hefur verið greint frá hefur ísfisktogarinn Bergey VE nú fengið nafnið Bergur. Skipið hélt í sína fyrstu veiðiferð undir nýju nafni síðdegis sl. föstudag og kom til löndunar með fullfermi sl. mánudag. Skipstjóri á Bergi í þessarri veiðiferð var Ragnar Waage Pálmason og segir hann að hún hafi gengið vel. „Við vorum þrjá daga í túrnum og það var víða farið. Við byrjuðum á að taka tvö hol á Pétursey og þar var töluvert af þorski. Síðan voru tekin tvö hol á Mýragrunni og þar var helst ýsa. Síðan var farið í Lónsbugtina í leit að ufsa og þar á eftir tekið eitt hol í Sláturhúsinu. Síðasta holið var síðan tekið við Ingólfshöfðann. Aflinn sem komið var með að landi var blandaður en mest af þorski, ýsu og ufsa. Ég held að megi segja að þessi veiðiferð hafi bara gengið þokkalega,“ segir Ragnar.

Aðspurður segir Ragnar að áhöfnin kunni ágætlega við nýtt nafn á skipinu. „Þetta er sama skipið og við vorum á áður, það hefur ekkert breyst nema nafnið.“

Bergur hélt til veiða strax að löndun lokinni á mánudaginn og var ætlunin að leggja áherslu á að veiða karfa.

Vestmannaey VE landaði einnig fullfermi í Vestmannaeyjum á mánudaginn.