Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í gær.  Ljósm. Smári GeirssonBjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í gær.
Ljósm. Smári Geirsson
Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar síðdegis í gær með fyrsta kolmunnafarminn frá miðunum vestur af Írlandi, 1700 tonn. Í kjölfar hans kom síðan Börkur NK með 2300 tonn og er verið að landa úr honum í dag. Þá er Margrét EA að landa 2000 tonnum á Seyðisfirði. Beitir NK lagði af stað af miðunum í morgun með rúm 3000 tonn.
 
Heimasíðan ræddi við Gísla Runólfsson, skipstjóra á Bjarna Ólafssyni, og spurði fyrst hvernig heimsiglingin hefði gengið en eins og kunnugt er eru skipin að veiðum í um 800 mílna fjarlægð frá löndunarhöfnunum á Austfjörðum. „Heimsiglingin tók hvorki meira né minna en fjóran og hálfan sólarhring. Fyrstu tveir sólarhringarnir voru ágætir en síðan skall á kolbrjálað veður og tíu metra ölduhæð. Við slóguðum bara í hátt í tvo sólarhringa. Það er ágætis veiði þarna á miðunum þegar viðrar, en staðreyndin er sú að þetta er ógeðslegt svæði veðurfarslega. Svei mér þá ef maður er ekki að verða  of gamall í þetta,“ segir Gísli.