Runólfur SH lætur úr höfn í Vestmannaeyjum í gær.  Ljósm. Arnar RichardssonRunólfur SH lætur úr höfn í Vestmannaeyjum í gær. Ljósm. Arnar RichardssonÍ gær lét Runólfur SH, áður Bergey VE, úr höfn í Vestmannaeyjum og hélt áleiðis til nýrrar heimahafnar á Grundarfirði en það er Guðmundur Runólfsson hf. sem hefur fest kaup á skipinu. Í Eyjum ljúka menn upp einum munni um það að þarna hafi gæðaskip kvatt Eyjarnar.
 
Eins og ýmsum er kunnugt hafa forsvarsmenn Bergs-Hugins ávallt haft mikið dálæti á tölunni fjórum og kemur það  dálæti skýrt fram í einkennisstöfum  skipa fyrirtækisins, símanúmerum og í reyndinni alls staðar þar sem mögulegt er að koma tölunni að. Runólfur leysti landfestar í Vestmannaeyjum í gær klukkan 16.44 en þá voru liðin 12 ár og 44 dagar frá því að skipið kom nýtt frá Póllandi til Eyja.
 
Frá því að Bergey kom hefur skipið farið í 777 veiðiferðir og veitt rúm 43 þúsund tonn. Það gerir 55,5 tonn að meðaltali í veiðiferð. Aflaverðmæti hverrar veiðiferðar hefur að meðaltali verið 14,5 milljónir króna.