Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri og Þorsteinn Már Baldvinsson við undirritun samnings í FrederikshavnGunnþór Ingvason framkvæmdastjóri og Þorsteinn Már Baldvinsson við undirritun samnings í Frederikshavn

Gitte Henning, stærsta uppsjávarskipið við Norður- Atlantshaf, var afhent Síldarvinnslunni í Frederikshavn í Danmörku í dag og fékk þá nafnið Beitir. Skipið fór í slipp til skoðunar í morgun og nokkur spenna ríkti hvað varðaði skráningu þess af danskri skipaskrá og yfir á íslenska, en ef skráning hefði dregist hefði skipið vart komist til heimahafnar í Neskaupstað fyrir jól. Með samstilltu átaki og lengingu vinnudags tókst fulltrúum dönsku skipaskráinnar og Samgöngustofu að ljúka skráningarvinnunni og er nú gert ráð fyrir að skipið komi heim á Þorláksmessu. Samhliða þessu var gamli Beitir færður af íslenskri og yfir á danska skipaskrá, en hann gekk upp í kaupin á nýja skipinu.

Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Síldarvinnslunnar var að vonum ánægður að afhendingunni lokinni. „Þetta er stórt og glæsilegt skip og fyrir hönd Síldarvinnslunnar er ég stoltur og ánægður. Uppsjávarskip fyrirtækisins eru svo sannarlega glæsileg með tilkomu þessa nýja skips og ég er sannfærður um að þessi kaup verða farsæl fyrir Síldarvinnsluna. Skipið er einungis rúmlega eins árs gamalt og allur búnaður í því er eins og best getur orðið, en það leysir af hólmi átján ára gamalt skip,“ sagði Þorsteinn.

Hinn nýi Beitir var smíðaður í skipasmíðastöðinni Western Baltija í Klaipeda í Litháen og kom nýr til Danmerkur árið 2014. Skipið er 86,3 metrar að lengd, 17,6 metrar að breidd og 4.138 brúttótonn. Burðargeta skipsins er 3.200 tonn.