![](https://svn.is/wp-content/uploads/2023/08/Beitir-sigling-1-ag-2023-HFO.jpg)
![](https://svn.is/wp-content/uploads/2023/08/Beitir-sigling-2-ag-2023-HFO.jpg)
Í síðustu viku datt makrílveiðin í íslensku lögsögunni niður og fannst fiskurinn ekki þrátt fyrir mikla leit skipanna. Þá var haldið út í Smugu og í lok vikunnar gengu veiðar þar afar vel. Síldarvinnsluskipin og Samherjaskipin, sem eru í veiðisamstarfi, fengu góð hol og kom Beitir NK til Neskaupstaðar í gær með 1.850 tonn og Margrét EA hélt til Egersund í Noregi með 1.750 tonn. Nú er Vilhelm Þorsteinsson EA á landleið með tæplega 1.500 tonn þannig að Barði NK og Börkur NK eru einu skipin í samstarfinu sem nú eru að veiðum. Heimasíðan ræddi stuttlega við Tómas Kárason, skipstjóra á Beiti, og innti hann frétta af veiðunum. „Nú er veitt í Smugunni og þar var alveg glimrandi veiði á meðan við vorum úti. Skipin voru að fá allt upp í 400 tonn í holi. Skipin í okkar samstarfi voru að veiðum í syðri hluta Smugunnar, um 350 mílur austnorðaustur af Norðfjarðarhorni. Þarna veiðist miklu smærri fiskur en sá sem veiddist í íslensku lögsögunni. Fiskurinn sem þarna fæst er mikið 370 – 400 grömm en fiskurinn sem veiddist í okkar lögsögu var gjarnan 500 – 600 grömm. Mér finnst vertíðin hafa gengið býsna vel til þessa og það er afar mikilvægt hve mikið hefur veiðst í íslenskri lögsögu. Svo bíður norsk – íslenska síldin handan við hornið og það verður spennandi að fá að glíma við hana,“ segir Tómas.