Pokinn losaður um borð í Vestmannaey VE. Ljósm. Björn Steinbekk

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í gær, Bergur í Vestmannaeyjum en Vestmannaey í Grindavík. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að tveir síðustu túrar skipsins hafi gengið afar vel. „Við lönduðum karfa sl. laugardag og vorum með fullfermi. Þá vorum við að veiðum við Eldey og á Fjöllunum. Það var haldið út á ný strax eftir löndun og farið á Víkina þar sem tekinn var þorskur. Síðan var farið í Sláturhúsið út af Hornafirði og tekin ýsa uns skipið var fullt. Segja má að þessir túrar hafi verið lúxustúrar. Það var góður afli og alger blíða. Í sannleika sagt er þetta bara tóm sæla og aldrei neitt bras. Ég geri ráð fyrir að haldið verði til veiða á ný í kvöld,“ segir Jón.

Vestmannaey var í sinni fyrstu veiðiferð eftir mánaðarlangt stopp. Haldið var til karfaveiða. Heimasíðan ræddi við Egil Guðna Guðnason skipstjóra og spurði fyrst hvort ekki væri gott að vera kominn aftur á sjó eftir stoppið. „Jú það er ágætt. Það hefur verið spegilsléttur sjór allan þennan túr og það eru forréttindi að fá að vera á sjó í svona veðri. Það gekk líka vel að veiða. Við fórum í Skerjadýpið og fylltum skipið þar. Þetta er mest djúpkarfi og svolítið af gullkarfa og ufsa með,“ segir Egill Guðni.