Beitir NK að landa í Neskaupstað í gær. Ljósm. Helgi Freyr ÓlasonBeitir NK að landa í Neskaupstað í gær.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason
Síðustu tvo dagana hefur kolmunnaveiðin í færeysku lögsögunni verið góð þó síðasta nótt hafi ekki verið gjöful. Bjarni Ólafsson AK er á landleið með 1.810 tonn sem hann fékk í fjórum holum og er hann væntanlegur til Neskaupstaðar í fyrramálið. Vilhelm Þorsteinsson EA er að landa 2.100 tonnum á Seyðisfirði. Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóri á Seyðisfirði segir að lögð hafi verið áhersla á að halda verksmiðjunum á Seyðisfirði og í Neskaupstað gangandi að undanförnu þegar kolmunnaveiðin var heldur treg. Til dæmis landaði Börkur NK síðasta farmi sínum bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði sl. mánudag og þriðjudag svo unnt væri að halda verksmiðjunum gangandi. Hann landaði 1.200 tonnum í Neskaupstað og 1.000 tonnum á Seyðisfirði. Upplýsir Gunnar að verksmiðjan á Seyðisfirði sé búin að taka á móti 41.000 tonnum af kolmunna frá því í marsmánuði. 
 
Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri í Neskaupstað segir að Beitir NK hafi landað þar 2.400 tonnum í gær og þá sé búið að taka á móti 48.000 tonnum af kolmunna á árinu þannig að verksmiðjur Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og í Neskaupstað hafa samtals tekið á móti 89.000 tonnum.