Makrílvinnsla í sumar.  Ljósm. Þórhildur Eir SigurgeirsdóttirSíðastliðinn miðvikudag kom Hákon EA til Neskaupstaðar með um 700 tonn af frystri norsk- íslenskri síld. Þetta var hans síðasta veiðiferð á makríl- og síldarvertíðinni og er vertíðinni þar með lokið en önnur skip sem hafa verið við veiðar á makríl og norsk-íslenskri síld og landað í Neskaupstað eru hætt þessum veiðum fyrir nokkru enda veiðiheimildir uppurnar.

Sá afli sem kom til vinnslu í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar á vertíðinni nam alls 31.720 tonnum, þar af var makríll 14.590 tonn og síld 17.130 tonn. Megnið af aflanum kom frá þremur veiðiskipum, Beiti NK, Berki NK og Bjarna Ólafssyni AK. Að auki lögðu þrír togarar upp lítilsháttar afla til vinnslu í verinu.  Aflinn skiptist á skipin sem hér segir:

  Makríll Síld
Börkur NK 5.212 6.912
Beitir NK 5.741 6.448
Bjarni Ólafsson AK 3.433 3.726
Togarar 204 43

Fyrir utan þann afla sem landað var til vinnslu í fiskiðjuverinu lönduðu fimm vinnsluskip frystum makríl og síld í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á vertíðinni. Afli þeirra nam samtals  26.100 tonnum og skiptist þannig á milli skipa:

Vilhelm Þorsteinsson EA  9.200 tonn
Hákon EA 7.700 tonn
Kristina EA 7.900 tonn
Barði NK  800 tonn
Huginn VE 500 tonn

Fyrir utan hinar frystu afurðir lönduðu vinnsluskipin til mjöl- og lýsisvinnslu um 9.000 tonnum af afskurði og fiski sem flokkaðist frá við vinnsluna. Þá landaði Birtingur NK 1.467 tonnum af makríl til mjöl- og lýsisvinnslu en sá afli fékkst í grænlensku lögsögunni. 

Á framansögðu má sjá að alls bárust 68.230 tonn af makríl og norsk-íslenskri síld til Neskaupstaðar á vertíðinni.

Þá tók mjöl- og lýsisverksmiðja Síldarvinnslunnar í Helguvík á móti 7.313 tonnum af makríl sem veiddist í grænlensku lögsögunni.