NeistaflugHið árlega golfmót Neistaflug GN og SVN h.f. fer að vanda fram laugardaginn um verslunarmannahelgina og hefst kl. 7.30.  Mótið verður glæsilegt og veitt vegleg verðlaun fyrir 1. – 3. sætið í höggleik karla, fyrir besta skor kvenna og unglinga, fyrir 1. – 5. sæti í opnum flokki skv. punktakerfi. Auk þess verða þrenn nándarverðlaun og að lokum dregið úr skorkortum viðstaddra við mótsslit. Í golfskálanum verða veitingar alla helgina og m.a. boðið upp á síldarhlaðborð að hætti Halla Kalla Jör og húsnefndar GN og eru allir gestir á Neistaflugi boðnir velkomnir að hlaðborðinu. Síldarvinnslan h.f. styrkir mótið af miklum myndarskap og þakkar stjórn GN fyrirtækinu frábæran stuðning bæði fyrr og nú.