Hjá skipum Síldarvinnslunnar og dótturfélagsins Runólfs Hallfreðssonar ehf. gekk veiði á uppsjávartegundum vel á síðasta ári þrátt fyrir að engin loðna væri veidd. Þá var verð á uppsjávarafurðum hátt þannig að afkoman var með betra móti. Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar eru þrjú talsins og var afli þeirra í síld, kolmunna og makríl sem hér segir:
Heildarafli | Verðmæti | |
Beitir NK | 44.448 tonn | 1.526 mkr. |
Börkur NK | 43.435 tonn | 1.537 mkr. |
Bjarni Ólafsson AK | 27.876 tonn | 970 mkr. |
Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað vann 45.532 tonn af makríl og síld á síðasta ári og hefur aldrei áður verið unninn jafn mikill makríll í verinu.
Fiskimjölsverksmiðjan í Neskaupstað vann úr 97.000 tonnum af hráefni á árinu sem var að líða og verksmiðjan á Seyðisfirði úr 37.000 tonnum af kolmunna.