
Bæði skipin hafa verið að afla vel á Austfjarðamiðum það sem af er hausti og hafði heimasíðan samband við Jón Valgeirsson skipstjóra á Bergey. Þegar rætt var við Jón var Bergey að toga í Vonarbrekkunni austan við Hvalbakinn. „Það hefur verið fínasta fiskirí hérna fyrir austan að undanförnu. Við lönduðum á Seyðisfirði um 60 tonnum hinn 16. október og síðan aftur í gær 78 tonnum. Uppistaða aflans er ýsa og þorskur. Í fyrri túrnum vorum við mest í Litladýpi og á Breiðdalsgrunni en í seinni túrnum á Glettinganesgrunni. Ég geri síðan ráð fyrir að við löndum í Eyjum að loknum yfirstandandi túr,“ sagði Jón.