Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 85 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði í gær. Aflinn var nánast eingöngu ýsa og þorskur. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri sagði að veiðin hefði verið misjöfn en veður ágætt. „Við vorum mest í Hvalbakshallinu og á Hvalbaksgrunni. Þetta gekk heldur brösuglega framan af en úr þessu rættist í restina. Við fengum mjög gott skot í lok túrsins. Fiskurinn sem þarna fékkst er mjög góður og ætti að henta vel fyrir vinnsluna. Þorskurinn í Hvalbakshallinu var fullur af loðnu en við urðum hins vegar ekki varir við neinar loðnutorfur. Líklega er loðnan mjög dreifð á þessu svæði,“ sagði Hjálmar Ólafur.

Gullver hélt til veiða á ný að lokinni löndun í gær.