Landað úr Barða NK.  Ljósm. Þorgeir BaldurssonFrystitogarinn Barði NK hélt í grálúðu- og ufsatúr eftir sjómannadag. Allan túrinn hefur hann verið við grálúðuveiðar og aflað vel. Til stóð að skipið héldi til ufsaveiða vestur á Hala um tíma en sú veiði reyndist einungis vera þriggja daga skot og því var hætt við að fara þangað. Theodór Elvar Haraldsson skipstjóri lætur vel af túrnum og segir að skipið sé að fyllast og því sé ráðgert að millilanda næstkomandi föstudag. „ Við munum væntanlega koma inn á föstudagsmorgun og halda aftur til veiða á föstudagskvöld að löndun lokinni“, segir Theodór. „Við vorum einmitt núna að taka gott hol, en aflinn hefur gjarnan verið um 500 kg. á togtíma að undanförnu og það þykir gott. Við erum að veiðum Utanfótar eins og sagt er, en þar er góð grálúðuslóð. Utanfótar er utan við Fótinn sem er norðaustur af Breiðdalsgrunni. Ég geri ráð fyrir að haldið verði áfram í grálúðunni að aflokinni millilöndun eða þá að við förum í ufsa ef hann gefur sig einhvers staðar“, segir skipstjórinn á Barða að lokum.