Karfi unninn í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Ljósm. Smári GeirssonKarfi unninn í fiskiðjuverinu í Neskaupstað.
Ljósm. Smári Geirsson
Fyrir rúmum mánuði hófst vinnsla á grálúðu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Síðar hófst einnig vinnsla á karfa. Það er Anna EA sem veiðir grálúðuna í net en karfinn kemur frá ísfisktogurum Síldarvinnslunnar. Að sögn Jóns Gunnars Sigurjónssonar yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu gengur þessi vinnsla vel og þykir hún henta ágætlega þegar hlé er á vinnslu uppsjávartegunda. „Það er búið að taka á móti um 400 tonnum af grálúðu frá því að vinnslan hófst og þegar grálúðu vantar er unninn karfi. Það eru oftast 15-20 manns sem starfa við vinnsluna. Það var stutt hlé á vinnslunni í kjölfar sjómannadags vegna þess að skipin voru ekki á sjó um helgina en nú er von á grálúðu og sú vinnsla fer brátt á fullt á ný,“ segir Jón Gunnar.
 
Bæði lúðan og karfinn eru unnin fyrir Japansmarkað. Grálúðan er hausskorin, sporðskorin, hreinsuð og fryst en karfinn er heilfrystur.