Gullver NS landaði síðast á Seyðisfirði 24. júní sl. Síðan hefur verið unnið að viðhaldi og breytingum á skipinu í heimahöfn og er ráðgert að hann haldi á ný til veiða 29. júlí nk. Sumarlokun er hjá frystihúsinu á Seyðisfirði og er þá tækifærið nýtt til að vinna við skipið.
Aðalvél skipsins verður tekin upp og annast fyrirtækið Framtak í Reykjavík það verk. Ýmis verkefni eru í höndum seyðfirskra verktaka og má þar til dæmis nefna stækkun stakkageymslunnar. Þá verður sett krapavél í skipið og mun hún leysa af hólmi tvær skelísvélar sem voru fyrir. Reynslan af krapavélum í Vestmannaey og Bergey er góð og hafði það áhrif á þá ákvörðun að koma einnig upp slíkri vél í Gullver. Álitið er að krapinn tryggi betri kælingu á aflanum og auk þess léttir tilkoma hans mikið vinnu í lestinni. Það er fyrirtækið Kapp sem annast uppsetningu krapavélarinnar.
Að sögn Karls Jóhanns Birgissonar, rekstrarstjóra útgerðarsviðs Síldarvinnslunnar, ganga framkvæmdirnar um borð í Gullver samkvæmt áætlun en yfirvélstjórar skipsins, þeir Gunnlaugur Hafsteinsson og Halldór Sverrisson, hafa daglegt eftirlit og umsjón með þeim.